Nei, nei, Nei, nei, Nei, nei, Nei,nei, Nei NNNNNNNNeeeeeeeeiiiiiiiiiiiiiiii

Vinkona vinkonu vinkonu einhleypu konunnar í Efra Breiðholti kom við í kaffi í dag og ekki með neinar smá fréttir mar.

Hann dóta Dabbi (DD) hafði ráðið 11 nýja sendiherra fyrir hönd Íslands um allan heim en ekkert land vildi taka við þessum nýju sendidátum DD.  þeir vissu að það var eitthvað gruggugt við þetta að DD fjölgaði svo skyndilega í einkaspæjarahernum að ekkert land vildi einu sinni ljá máls á að hitta þá, hvað þá að hleypa þeim inn í landið hjá sér til a njósna fyrir DD eða gera eitthvað þaðan af verra. Nei, vinkona vinkonu einhleypu konunnar var alveg sjúr á því að nú var allt að verða vitlaust.

Ég verð að fara strax og tala við hana og fá nánari frétti.  Hvað er eiginlega á seyði mar. Var ekki nóg komið? Hvar eru Vinstri Grænir?  Og hvar er leyniherinn núna? Á ekki að stoppa þessa vitleysu? Fær enginn að gera neitt nema DD? Hækka vexti - ráða sendiherra - gera allt vitlaust allsstaðar? Hvað fær svona maður eiginlega í jólagjöf? Hærri eftirlaun? Hvað fær leynisendiherraherinn í eftirlaun og jólagjöf?  Bara strax. Fá að vita þetta allt strax og það í efra Breiðholti og ekkert bull mar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband