Hann er búinn að fá nýtt jobb og það ekkert slor. Segið svo að menn séu ekki í klíku! Og hvað er verið að skíta Framsóknarflokkinn út?

Nei, hann var sko ekki í vandræðum að fá nýtt jobb, bara skellti sér í slaginn fráfarandi formaður formannanna og launahækkari hæst launuðustu hæst vitrustu seðlabankastjóra hjá Lísu í Undralandi, þar sem raunveruleikinn er enginn og hálfvitahátturinn slær öll met. 

Að vera í undralandi og í Mattador er sko annað en að vera í okkar heimi og það er langur  biðlisti að komast í undraland og líkkistuna við Arnarhól. Þeir brosa rosalega sem komust nú í svörtu líkkistuna og ætla sko að hafa það gott  Þeir æta að fækka fundum um helming og hafa sömu laun þannig að launin í Líkkistunni í Undralandi hækki nú strax um 100% án þess að það komi í blöðunum. Hvílík snilld og hafa líkkistur þó ekki hingað til talist til sælubústaða. Það er breytt og eru nú Alsælubústaðir í Undralandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband