Hneiksli

Enginn vafi, enginn vafi. Einhleypa konan í efra Breiðholti sló í gegn sagði vinkona vinkonu hennar.

Risa Valdaskessa sem óð yfir allt og alla og valtaði nær alveg yfir Framsóknarflokkinn sem var þó vel valtaður eftir að hafa legið undir Sjálfstæðisflokknum í áraraðir án þessa að fá það almennilega.  Fyrr má nú rota en hryggbrjóta sagðún og reif svoleiðis kjaft að það var óþolandi um allt efra og neðra Breiðholt. Nei, það verður tekið á þessum málum. Þeir Finnur Ingólfs og Bingi verða nú að taka á honum stóra sínum og láta Risavaldaskessuna vita hvar Davíð keypti ölið. Þeir eru þeir einu sem vita það og hafa verið í þvílíkum samskiptum við Dótadabba að enginn kemst með stóra sinn þar sem Finnur og Bingi hafa sinn. Nei Guðni sló aldeilis beint á naglann á höfuðið og Risavaldaskessan skellti sér áfram og skall beint á Framsóknarflokknum sem varð eiginlega að engu. Rosalegt maður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband