DótabúðaDabbasálfræðiStýrivaxtaþjónustuFramsóknarhrapið

Vá marrrr!!!!!!!! 

Fyrr má nú rota en tæta í sig og handleggsbrjóta sagði vinkona vinkonu einhleypu konunnar í efra Breiðholti um helgina. Dóta dabbi er að flippa upp niður með stýrivöxtunum, nær eins og með víagra beint uppí loftið og er nærri búinn að evruvæða allan húsnæðismarkaðinn með því að bora uppí nefið á sér. 

Margt hefur nú gerst með minni fyrirhöfn en þetta þó þetta hor-bor og stýrivaxtaevrurugl í dóta dabba slái hreint öllu við eins og allir þekkja. Enginn vill lengur kannast við dóta dabba og hvernig hann stýrir stýrivöxtum Stýri-dótabúða upp og niður, upp og niður, borar í nefið upp og niður.

Nei, þetta er ekkert grín (Energy) og það verður að stoppa málið strax á byrjunarstigi. Allar skemmdir og hryðjuverk sem verið er að vinna að í efstu hæðum, efst í nefinu á dóta dabba verður að stoppa strax annars rekur hann blýantinn upp í gegnum nefið á sér með svona háum stýrivöxtum. 

Í hæstum hæðum bora skal, upp og upp með stýrivexti og upp með nebba dóta dabba, vaxta pabba söng einhleypa konan í efra Breiðholti um leið og hún þeyttist upp í efra Breiðholt til að segja vinkonu vinkonu sinnar fréttirnar.

En það vakti einnig athygli einhleypu konunnar að engar fréttir voru nú af hundinum sem fannst bak við öskutunnurnar í Seðlabankanum. Hann hefur legið undir rúmi og er hættur í forkaupsréttarmálum Framsóknarflokksins í grey REY og lætur grínið í Green Energy vera amk í bili þar til búið er að selja amk 1000 eintök af ævisögu Guðna. Ekkert grín það.

Að skemma útgáfu formannsins mundi þýða að hundurinn mundi missa embætti yfirhunds hjá Framsókn, jafnvel þó formaðurinn hafi ekki minnst á hundinn í sinni ævisögu. En hver vill muna eftir hundi hugsaði vinkona einhleypu konunnar í efra Breiðholti?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband