Hund skrattinn bar búinn að liggja þarna lengi þegar kötturinn átti leið hjá. Engin leið var að sjá að það stefndi í óefni. Engin ský á himni, engin stjórnarslit framundan og eiginlega ekkert að ske. Engin hneykslismál, ekkert framhjáhald, enginn að stela neinu, engin morð, engar launahækkanir í Seðlabankanum og eiginlega ekkert fyrr en helvítis kötturinn steig ofaná loppuna á Snata. Þá hrundi heimurinn. Snati öskraði og öskraði og öskraði og kötturinn lamaðist alveg. Það hafði ekki gerst fyrr og fyrr en vaði var gengið farið að falla. Það var alveg sama hvernig allt var reynt til að koma í veg fyrir gengisfall, vaxtahækkanir og allt þetta klessuverk stjórnmálamannanna með fjárhag landsmanna að allt ætlaði að hrynja og um koll að keyra. það var ekki fyrr en Byggðastofnun var gerð skuldlaus í gær með einu pennastriki að allt féll í ljúfa löð.
Allt stoppaði, alger þögn og algert hljóð. Kötturinn hætti að anda, hallaði sér í áttina frá Snata og færði síðan aðra löppina nær húsinu í áttina frá Snata. Þannig gat hann smátt og smátt losað sig út úr vandræðunum og slapp fyrir hornið án þess að Snati gæti nokkuð að gert enda var búið að kýla stýrivextina undir bumbuna á aumingja Snata sem gat sig hvergi hreyft frekar en allt efnahagskerfið sem var múlbundið í krónum sem voru frosnar í vítahring stýrivaxta, verðbólgu, verðhjöðnun, gengishafta, gengislækkana, gengishækkana, hlutabréfahækkana, hlutabréfalækkana, milljarðagróða, milljarðatapi og heimsmeti í allskonar bulli sem Snati og kisi botnuðu ekkert í.
ÉG held að ég verði að fara strax til einhleypu ekkjunnar í efra Breiðholti og láta hana vita strax.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 1.8.2007 | 21:12 | Facebook
Nýjustu færslur
- Það hvessssssssssssssssssssssssir í Efra Breiðholti núuuuuuuu...
- GAS - GASSSSSSSSSSSSSSSSSSS - GAAAAAAASSSSSSSSSSSSSSSSSSSS
- Er komin heim frá Kanarí og ekkert nema spilling
- Leynispillingin - Þetta er ótrúleg ósvífni - hræsni eða lygi ...
- Nei, nei, Nei, nei, Nei, nei, Nei,nei, Nei NNNNNNNNeeeeeeeeii...
- DótabúðaDabbasálfræðiStýrivaxtaþjónustuFramsóknarhrapið
- Hneiksli
- Ég hélt að hann væri að þrífa hundaskítinn á stéttinni neðan...
- Þeir komu að nóttu og rændu REI þeir Bjarni Ármanns, Helgi S....
- Helvítis kötturinn beit hann og klóraði
- Hundleiðinlegt
- Hann er búinn að fá nýtt jobb og það ekkert slor. Segið svo ...
- Bankaræningi og tilvonandi tugthúslimur stjórnaði "Mjaltavéli...
- Flutningabíllinn sem ég mætti á dögunum var fullur af bjór og...
- "Framsóknarverkamaður óskast til að hækka laun Davíðs Oddsson...