Alger steypa

Þetta er alger steypa sagði vinkona mín, einhleyp húsmóðir i efra Breiðholti.

Nú er eini sénsinn til að ná sér í kall að fara á einkaskemmtun hjá Bláu Hendinni

Það er af sem áður var þegar maður gat farið á Framsóknarball og farið heim með amk einn nokkuð vænan framsóknarmann í góðum embættum og með mikið af bitlingum. Nei, þetta er allt búið. 

Nú er að Báa höndin sem reyndar er komin í felur en rekur svona sjá skemmtanir fyrir okkur sem erum að sleikja sárin eftir kosningarnar. Ástandið er svipað og í Austur Berlín fyrir múrinn. Svallað í reykfylltum bakherbergjum, stelpur sitjandi á lærum á köllunum og allir reykjandi og drekkandi. Hvað verður eiginlega um þessa gömlu og góðu framsóknarmenn? Maður spyr bara. Og Guðni Ágústsson orðinn formaður. Svei bara.

Ég nenni sko ekki á neitt sveita- og rolluball hjá Guðna og þurfa að dragast með einhverja illa lyktanti kalla útí móa og hafa enga tryggingu fyrir að þeir séu í neinum embættum eða með bitlinga. það eru bara framsóknarmennirnir á mölinn sem eru með svoleiðis. Hinir eru bara með hor í nös.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband