Offramboð til alþingis - fáir kallaðir en margir útvaldir

DevilÉg var í offramboði til alþingis en enginn vildi kjósa mig. Ég er samt einhver al merkilegasti karakterinn  sem Ísland hefur uppá að bjóða. Enginn ætti að ganga framhjá mér. Minn tími mun koma og ég mun sannarlega láta fólk vita hvar Davíð keypti ölið.

Ef kjósendur ætla að sniðganga mig svona þá mun ég algerlega hafna því að taka að mér einhver ábyrgðarstörf.  Að kjósa mig ekki er alger svívirða og ég er mjög svekkt(ur) þannig ég mun virkilega hugsa minn gang.

Það virðist vera alger trygging fyrir þingsæti að sitja í tukthúsinu frítt í einhvern tíma og því lengra því betra. Ég ætla að kanna það og athuga hvort einhver einhleyp kona í efra Breiðholti vill ekki sitja inn með mér. 

Allavega er ljóst að það  öruggara til að fá þingsæti að sitja inni heldur en til dæmis að vera Ráðherra. Það máttu margir ráðherrar reyna núna að þeim var vísað út og náðu ekki inn á þing meðan fyrrverandi tukthúslimir fluku inn.

En hvílík móðgun og niðurlæging og ég sem er ein besti og merkilegasti einstaklingurinn sem þjóðin hefur alið og þó mjög vægt til orða tekið. Þvílík móðgun, eiginlega algert brjálæði. Ég sem hef sýnt svo mikinn dugnað og einlægni í að rífa kjaft fyrir land og þjóð.

Þetta er algert svekkelsi og sjá hverskonar lúðar það eru sem hafa verið dregnir inn á þing meðan mér er hafnað.  Algert svekkelsi.

Einhvernvegin læðist að manni að Ósýnilega höndin hafi unnið gegn mér og spillt öllu samfélaginu þannig að ég ætti engan séns.  

 Þetta er stórglæpur og eitt alvarlegasta mál sem upp hefur komið, miklu alvarlegra en Bláa höndin sem tætti í sig Baug og er þá mikið sagt. Ljóta klúðrið.Wizard


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband